Samkvæmt nýrri rannsókn Public Health England þykir þriðju hverri konu þar í landi vandræðalegt að gefa barni brjóst á almannafæri. Rannsóknin leiddi einnig í ljós að ein kona af hverjum fmm telji að öðrum sé illa við að þær gefi barni sínu brjóst á almannafæri.
Það virðist því ekkert veita af því að skerpa á #freetheniple í Bretlandi. Sex af tíu konum sem eru með barn á brjósti reyna að dylja brjóstagjöfina þegar þær eru í almannarými og þriðjungi þykir vandræðalegt eða óþægilegt að gefa brjóst utan heimilisins.
Rannsóknin leiddi ýmislegt annað áhugavert í ljós, til dæmis að ein af hverjum tíu konum, sem kusu að gefa börum sínum ekki brjóst, létu áhyggjur sínar af því að gefa brjóst utan veggja heimilisins hafa áhrif á sig.
Í Bretlandi er bannað með lögum að meina konu að gefa barni brjóst á almannafæri en þó hafa ítrekað komið upp áberandi mál þar sem konur hafa verið beðnar um að hylja brjóst sín við gjöf.
Dr. Ann Hoskins, yfirmaður hjá Public Health England, segir afleitt að neikvætt viðhorf til brjóstagjafar á almannafæri fæli konur frá því að gefa börnum sínum þá næringu sem þeim er ætluð frá náttúrunnar hendi. „Brjóstagjöf er besta byrjun á lífi hvers barns og hefur einnig marga kosti fyrir móðurina. Kvíði vegna brjóstagjafar innan um annað fólk ætti alls ekki að aftra konum frá því að gefa börnum brjóst almennt.“
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) mælir með því að börn fái einungis brjóstamjólk fyrstu sex mánuði ævinnar. Meirihluti mæðra á Englandi byrja með börn sín á brjósti strax eftir fæðingu en sex til átta vikum síðar hefur þeim fækkað umtalsvert.
Könnunn náði til 2393 manneskja og leiddi í ljós að 72% séu hlynnt brjóstagjöf á almannafæri. Þegar sviðið var þrengt fækkaði þó þeim sem kippa sér ekki upp við brjóstagjöf. Þannig telja aðeins 57% brjóstagjöf á veitingastöðum ásættanlega og talan fer niður í 51% þegar almannasamgöngur eru annars vegar.