Þessir bitar eru einhverstaðar á milli köku og bökuðu haframjöli í áferð, afar bragðgóðir og fylla magann.
Þessir bitar eru einhverstaðar á milli köku og bökuðu haframjöli í áferð, afar bragðgóðir og fylla magann.
Það má líka prufa sig áfram og notað önnur ber eins og t.d hindber.
Uppskriftin gefur um 15 bita svo það má stækka hana.
Hráefni:
2 bollar af quinona (um 200gr)
½ bolli af fínmöluðu brúnu hrís-hveiti
½ bolli af rifinni kókóshnetu
2 tsk af kanil
1 tsk af glútenlausu bökunardufti (matarsóda)
Góð klípa af sjávarsalti sem er fínt malað
1/3 bolli af virgin kókósolíu
½ - 2/3 bolli af raw hunangi – fljótandi
3 stór egg – helst beint frá bónda
Fínt rifinn börkur af einni sítrónu
1 bolli af bláberjum, helst ferskum, en þau mega vera frosin
Leiðbeiningar:
- Hitið ofninn í 160 gráður. Takið plötu og berið á hana smjör eða notið smjörpappír og passið að pappírinn hylji einnig brúnir á plötunni ef hún er þannig.
- Blandið þurrefnum saman í stóra skál og hrærið þessu vel saman með sleif.
- Hitið kókósolíuna og hunangið í litlum potti yfir meðal hita, hrærið þar til þetta er bráðið saman.
- Hellið blöndunni saman við þurrefnin og hrærið vel. Bætið nú eggjum, sítrónuberki og haldið áfram að hræra vel saman.
- Setjið bláberin lang síðust saman við og hrærið varlega saman. Setjið nú blönduna á bökunarpappírinn, getið haft þetta ferhyrnt eða hringlótt en notið skeið til að jafna þetta til.
- Bakið í 20 – 25 mínútur eða þar til kantarnir eru orðnir gylltir og ef þrýst er á miðjuna þá er kakan þétt.
- Takið úr ofni og látið kólna áður en skorið er í bita, langsöm, ferkantaða eða hvernig sem er.
Má geyma í lofttæmdum umbúðum í 2 – 3 daga en ef sett er í ísskáp þá geymist þetta lengur.
Njótið~