Súkkulaði möndlu kókósbitar
Á að baka eitthvað nýtt og gott fyrir jólin ?
Á að baka eitthvað nýtt og gott fyrir jólin ?
Því ekki að prufa þessa uppskrift.
Uppskrift gefur 24 kökur og er einfalt að tvöfalda.
Hráefni:
2 bollar af hrá möndlum
1 stykki af dökku súkkulaði c.a 3 oz
1 tsk af sjávarsalti
4 bollar af möndlum
1 bolli af rifinni kókóshnetu
4 stúfullar msk af möndlusmjöri
Leiðbeiningar:
- Fyrst þarf að mylja niður möndlurnar og súkkulaðið þar til það er fínt en samt ekki of fínt.
- Skyldu svo helming af þessari blöndu í matarvinnsluvélinni og settu hinn helminginn til hliðar.
- Bættu nú við hálfri tsk af sjávarsaltinu, 2 bollum af döðlum, ½ bolla af rifinni kókóshnetu og 2 stútfullum msk af möndlusmjöri og láttu blandast í matarvinnsluvélinni þinni þar til allt ef mjúkt og fínt. Settu þessa blöndu í stóra skál.
- Núna skaltu setja í matarvinnsluvélina restina af súkkulaði-möndlublöndunni, rest af saltinu og döðlum, kókóshnetunni og möndlusmjörinu. Látið myljast vel saman. Og bætið í stóru skálina.
- Bleyttu nú aðeins hendurnar á þér til að blanda þessu vel saman í skálinni. Settu nú deigið í stórt form. Hafðu smjörpappír undir. Svo það sé auðveldara að ná bitunum úr forminu.
- Þetta skal svo hylja og geyma í ísskáp yfir nótt. Nú getur þú skorið þetta í eins litla eða stóra bita og þér hentar og auðvelt á að vera að ná þeim úr forminu.
Njótið vel!