Samkvæmt sérfræðingum er góður svefn lífsnauðsynlegur fyrir líkamlega og andlega heilsu okkar.
Það að þjást af svefnleysi getur haft slæm varanleg áhrif, svo það er kominn tími til að
forgangsraða. Til að veita þér innblástur þá eru hér fjórar helstu ástæður fyrir því
að líkami þinn og heili þurfa góðan svefn:
Þegar við fáum góðan nætursvefn erum við meira vakandi og skýr. Hlutir eins og nám,
lausn vandamála og ákvarðanataka verða auðveldari. En þegar við missum svefn
þá minnkar frammistaða heilans. Við erum hæg og sein að bregðast við. Langvarandi svefnleysi
getur skert dómgreind okkar og leitt til alvarlegra slysa.
Reyndar er þreytan ein aðalorsök bænvænna bílslysa.
Þegar við erum vel hvíld erum við betur fær um að stjórna tilfinningum okkar og hegðun.
Til dæmis, án fullnægjandi svefns, geta fullorðnir upplifað skapsveiflur og börn geta átt í
reiðiköstum eða í vandræðum með að umgangast aðra. Svefnskortur er einnig tengdur
þunglyndi, sjálfsvígum og áhættuhegðun.
Fólk með langvarandi svefnleysi er einnig með aukna hættu á hjartasjúkdómum,
nýrnasjúkdómum, háum blóðþrýstingi, sykursýki og heilablóðfalli. Að auki hefur svefnleysi
einnig áhrif á ónæmiskerfið. Einstaklingar sem þjást af svefnleysi geta átt erfiðara
með að vinna á algengum vírusum, eins og kvefi eða flensu.
Svefnleysi hefur áhrif á getu líkamans til að stjórna matarlystshormónum, þannig að þeir sem
hafa slæmar svefnvenjur hafa tilhneigingu til að hafa meiri matarlyst og borða meira en þeir
sem sofa vel. Reyndar leiddi rannsókn í ljós að fullorðnir sem þjást af svefnleysi voru 55% líklegri
til að vera í ofþyngd. Ef þú ert að reyna að léttast er mikilvægt að fá hvíldina sem góður nætursvefn gefur
Lengd svefns er mismunandi fyrir hvern einstakling og fer eftir aldri.
National Sleep Foundation mælir með eftirfarandi svefnvenjum:
Nýburar (0-3 mánuðir): 14-17 klukkustundir
Ungabörn (4-11 mánuðir): 12-15 klukkustundir
Smábörn (1-2 ára): 11-14 tímar
Leikskólabörn (3-5): 10-13 klukkustundir
Börn á skólaaldri (6-13): 9-11 klst
Unglingar (14-17): 8-10 klukkustundir
Yngri fullorðnir (18-25): 7-9 klukkustundir
Fullorðnir (26-64): 7-9 klukkustundir
Eldri fullorðnir (65+): 7-8 klukkustundir
Ef þú átt erfitt með svefn, þá er mikilvægt að leita til heimilislæknis.
Heimild: achn.net