Fáðu hraða og örugga greiningu
Augnþurrkur er útbreiddur sjúkdómur og ein helsta ástæða heimsókna til augnlækna.
Ný meðferð gegn augnþurrki!
Táralind greinir augnþurrk með háþróuðum tækjum og býður upp á nýjustu meðferðarúrræðin.
Hvað er augnþurrkur?
Þurrkur í augum er afar útbreiddur sjúkdómur og raunar ein af algengustu ástæðum heimsókna til augnlækna og sjóntækjafræðinga. Augnþurrkur er margþættur sjúkdómur sem hefur neikvæð áhrif á yfirborð augans. Ástandinu fylgja óþægindi, sjóntruflanir og óstöðugleiki í tárafilmu, sem getur hugsanlega skaðað yfirborð augans. Því er brýnt að leita meðferðar um leið og augnþurrks verður vart.
Einkenni augnþurrks:
|
|
Tárafilman
Ysta lag augans er þakið tárafilmu sem viðheldur raka og nærir yfirborð augans. Tárafilman er samsett úr fitu (olíu), vatni og slími. Olían leggst yst á tárafilmuna og er framleidd í fitukirtlum í augnlokunum. Hún sléttar yfirborð tárafilmunnar og temprar uppgufun.
Vatnið kemur úr tárakirtlunum og inniheldur m.a. kolvetni, prótein, súrefni og steinefni. Slímið er framleitt í bikarfrumum í slímhúð augans og bindur tárafilmuna við hornhimnuna. Tárafilman gufar sjálfkrafa upp af yfirborði augans. Það sem er umfram tæmist úr auganu í gegnum táragöng í augnlokunum og þaðan niður í nef.
HÉR getur þú tekið próf til að athuga hvort þú sért með augnþurrk.
Heimildir: taralind.is