Andlitsmaskar eru góð leið til að næra húðina og ná fram fallegum ljóma. Áður en þessir maskar eru settir beint í andlitið, prufaðu áður smá svæði á hálsinum eða handarbaki til að kanna hvort að þú fáir nokkuð ofnæmisviðbrögð.
Stappaðu jarðaberin vel með gaffli þar til að þau eru maukuð, bættu þá hunangi saman við. Passaðu uppá að hendur séu vel hreinar eða notaðu hreinan bursta til að setja varlega á allt andlitið og gættu vel að augnsvæðinu. Mæli með því að þú leggist niður og slappir aðeins af í 10-15 mínútur. Skolast af með volgu vatni og andlitið þerrað lauslega.
Stappaðu jarðaberjum vel saman, bættu síðan restina af hráefnum saman við. Passaðu uppá að hendur séu vel hreinar eða notaðu hreinan bursta til að setja varlega á allt andlitið og gættu að augnsvæði. Látið liggja á andlitinu í 5 mínútur og skolist svo af með volgu vatni.
Stappaðu jarðaberjum vel saman, bættu síðan hunangi og jógúrti saman við ef húðin þín er frekar feit eða rjóma ef þú hefur þurra húð. Passaðu uppá að hendur séu vel hreinar eða notaðu hreinan bursta til að setja varlega á allt andlitið og gættu að augnsvæði. Látið maskann liggja á andlitinu í 10-1 5 mínútur og skolist svo af með volgu vatni.
Munið að kanna svæði á hálsinum eða handarbaki áður en þið setjið framan í ykkur.
Tengt efni: