FAGNIÐ er þrautaleikur fyrir alla fjölskylduna sem fer fram sumardaginn fyrsta, þann 21. apríl 2016 þar sem hægt verður að vinna veglega vinninga.
Leikurinn er unnin af hópi MPM-nema Háskóla Reykjavíkur í samstarfi við Skátana, Securitas og fjölda annarra fyrirtækja sem hafa stutt við verkefnið.
Instagram #fagniðsumri
FAGNIÐ er þrautaleikur fyrir alla fjölskylduna sem fer fram sumardaginn fyrsta, þann 21. apríl 2016 þar sem hægt verður að vinna veglega vinninga.
Leikurinn er unnin af hópi MPM-nema Háskóla Reykjavíkur í samstarfi við Skátana, Securitas og fjölda annarra fyrirtækja sem hafa stutt við verkefnið.
Instagram #fagniðsumri
Hvernig tekur þú þátt?
- Leystu eins margar þrautir og fjölskyldunni langar til.
- Deildu mynd eða myndbandi af fjölskyldunni að leysa þrautina á Instagram með myllumerkinu #fagniðsumri. Því fleiri myndir/myndbönd því meiri líkur á vinningi.
- Eða sendu inn mynd hér (virkar ekki i snjalltækjum)
- Deila þarf myndunum fyrir miðnætti 22. apríl.
Listi yfir vinningshafa munu birtast á Facebook-síðu leiksins þann 25. apríl.
Þrautirnar
Þrautir leiksins eru 30 talsins og getur fjölskyldan valið um að taka þátt sér til skemmtunar og án allra skuldbindinga, eða átt kost á því að vinna fjölda vinninga með því að deila reynslu sinni af því að leysa þrautirnar á samskiptamiðlum. Þrautirnar eru fjölbreyttar og ættu allar fjölskyldur að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Hér er hægt að hlaða niður þrautunum í PDF.
1. Gefa fjölskylduliðinu nafn og búa til skjaldarmerki þess
2. Útbúa fána fjölskyldunnar
3. Búa til FAGN fjölskyldunnar og nota það til að fagna öllum sigruðum þrautum
4. Fleyta kerlingar á sjó/vatni
5. Gera góðverk
6. Búa til sumardrykk fjölskyldunnar
7. Taka fjölskyldumyndir með eftirfarandi í bakgrunni: Fjall, stopp skilti, dýr, lögreglumann og tré
8. Fara í þrautarkóng í verslun
9. Gefa öndunum brauð og syngja Litlu andarungarnir
10. Byggja sandkastala
11. Búa til fjölskyldusögu og teikna mynd
12. Fara í lautarferð
13. Grilla sykurpúða og segja sögur
14. Hrósa ókunnugum
15. Taka flippaða fjölskyldu selfie
16. Ganga afturábak í skrúðgöngu
17. Búa til listaverk úr því sem þið finnið í náttúrunni
18. Vaða í sjó/vatn/læk
19. Safna í krukku hlutum sem byrja á stöfunum: F A G N I D S U M R I
20. Gefa 5 ókunnugum „high five" á hverfahátíð
21. Búa til risastórann broskall
22. Sippkeppni (hver er fljótastur að sippa 50 sinnum)
23. Fá ferðamann/menn til að taka þátt í leik með fjölskyldunni
24. Reisa 5 hæða spilaborg
25. Fjölskyldumeðlimir mynda skúlptúr
26. Haldið plankakeppni fjölskyldunnar
27. Búa til tónlistarmyndband fjölskyldunnar
28. Fjölskyldumyndataka með frægum einstaklingi
29. Framkvæmið vísindatilraun fjölskyldunnar
30. Farið í boðhlaupsmyllu
Verið með í skemmtilegum leik á sumardaginn fyrsta, sem sagt í dag.