Tilefnið var árleg söfnun Bleiku slaufunnar í október. Þrjár algengustu og mest seldu vörurnar í vítamínlínu Gula miðans Múltí vít, Mega Omega 3 og D-3 vítamín voru settar í bleikan búning út október 2014 til styrktar baráttunni gegn krabbameini í konum. 200 kr. af hverju seldu glasi rann til styrktar Krabbameinsfélagsins.
Í gær afhenti Hafdís Guðmundsdóttir markaðsstjóri Heilsu, Þresti Árna Gunnarsyni fjármálastjóra Krabbameinsfélagsins eina milljón króna sem safnaðist í átakinu.
Hafdís segir að átakið hafi gengið vonum framar og þakkar öllum kærlega fyrir kaupin á Bleika miðanum og aðstoðina við að styrkja Krabbameinsfélagið til áframhaldandi góðrar vinnu við forvarnir gegn krabbameini.