Höfundur bókarinnar leitast við að hafa hráefnið í uppskriftirnar aðgengilegt og ódýrt og um leið bragðgott og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi.
Bókinni er skipt upp í flokka eftir uppskriftum; möndlu- og hnetudrykkir, grænir drykkir osfrv. Hverri uppskrift fylgir næringarinnihalda auk þess sem fallegar litmyndir af drykkjum bókarinnar gleðja augað.
Hildur er lífeindafræðingur að mennt og hefur alla tíð haft áhuga á heilsu og næringu og því hvernig næringarefnin vinna saman í líkamanum.
Allar uppskriftir bókarinnar eru eftir hana auk þess sem hún tók myndirnar sjálf.
Hildur heldur úti heimasíðuna www.heilsudrykkir.is og einnig Facebook síðuna Heilsudrykkir Hildar.