Nemar í hjúkrunar-, matvæla- og næringarfræði við Háskóla Íslands og sjúkraliðanemar úr Fjölbrautaskólanum í Breiðholti munu framkvæma mælingarnar ásamt starfsfólki Hjartaheilla og SÍBS.
Heilsufarsmælingar eru árlegur viðburður en síðast mættu ríflega 700 manns í mælingar og reyndust um 60% þeirra með of háan blóðþrýsting. Þar af mældust 43 einstaklingar á hættusvæði og var í kjölfarið bent á að snúa sér til læknis.
„Hjarta og æðasjúkdómar eru algengasta orsök dauðsfalla og ótímabærs heilsubrests á Vesturlöndum. Lífstílssjúkdómar eru að verða heilsufarsvandi númer eitt. Þeir eiga þó það sameiginlegt að þá má að hluta til fyrirbyggja með hollu mataræði. Ég hvet alla sem eru komnir yfir fertugt til þess að koma og fá að vita hver staðan er hjá þeim. Þetta er ekki eitthvað sem er gott að vita, það getur beinlínis verið lífsnauðsynlegt.“
Guðmundur Löve, framkvæmdastjóri SÍBS.
Heilsufarsmælingarnar eru liður í fjölþættu forvarna- og fræðslustarfi SÍBS og Hjartaheilla.
Guðmundur Löve, Ásgeir Þór Árnason,
framkvæmdastjóri SÍBS framkvæmdastjóri Hjartaheilla
Sími: 820 1510 Sími: 693 8800