Nær alltaf er ráðlagt að nota fleiri en eina olíu og þær eru sumar rándýrar. Olíurnar eru notaðar á ýmsan hátt. Oftast er meðferðin einhvers konar nudd og gælur með hjálp fleiri ilmkjarnaolíutegunda sem oftast eru þynntar í “burðarolíu” því lyktin af olíunum getur verið megn og efnin sum ertandi og jafnvel varasöm óþynnt. Stundum er olíunum úðað eða gufað út í loftið og stundum látnar drjúpa notalega úr loftinu á viðfangsefnið og er það þá kallað regndropameðferð og þykir hið áhrifaríkasta afbragð.
Sterk lyfleysuvirkni
Allt hefur þetta á sér blæ afslöppunar og huggulegheita enda getur það án efa haft gríðarlega sefjandi áhrif að anda að sér ilmandi angan við notalegar aðstæður og rólegheit, eins og gefur að skilja. Lyfleysuáhrifin eru því ágæt af þessum athöfnum.
En að það séu einhver dulvísindaleg áhrif önnur en huggulegheitin hefur ekki enn sannast og er reyndar mjög ósennilegt út frá líffræði, lífeðlisfræði, lífefnafræði og annarri raunþekkingu. Reyndar er nóg til af gervivísindalegum textum sem hljóma trúverðuglega en eru í raun tómt bull samanber tilvitnun í pistil á heilsubankinn.is hér að neðan, sem lýsir vel tyrfinni þvælunni sem notuð er til að telja leikmönnum trú um ágæti efnanna.
Ósannindi og blekkingar
Olíurnar eiga að hafa hin margvíslegustu áhrif á sjúkdóma og heilsuvandamál, einhverjar eiga jafnvel að geta komið í veg fyrir krabbamein.
Sumar fullyrðingarnar um gagnsemi þeirra eru hreinlega hlægilegar.
Má þar nefna meðferð við hrotum með olíu-iljanuddi eða meðferð við ADHD með því að setja olíuna undir stóru tána á barninu(sjá myndir).
Aðrar fullyrðingar eru öllu hættulegri og má þar nefna fullyrðingar um að olíurnar hafi sýkladrepandi áhrif og megi nota í meðferð á hættulegum sýkingum. Auðvitað eru olíurnar sumar sýkladrepandi, í tilraunaglasi en það er alkóhól líka. Samt hefur alkóhól aldrei læknað neinn. Fullyrðingar í um að ilmolíur séu gagnlegar við sýkingum eru rangar.
Ekki vantar efnið á netinu, upprunnið frá þeim sem hafa hagnað af að selja olíurnar. Hér eru nokkrar upptalningar, tíndar nánast af handahófi af vefnum heilsubankinn.is
Lavender er góð gegn; bruna, sólbruna, þurrkablettum, exemi og unglingabólum. Hún er róandi, og virkar gegn kvíða, þunglyndi, svefnleysi, hormónaójafnvægi, mígreni, höfuðverkjum og meltingartruflunum, s.s. niðurgangi.
Rosemary er notuð við hverskonar vöðvabólgvandamálum,hún örvar blóðrás, er vatnslosandi, og vinnur gegn appelsínuhúð(cellulitis), bjúg, liðverkjum, gigt, er bólgueyðandi, höfuðverkjum og minnisleysi. Eykur einbeitingu, er gegn þunglyndi, lágum blóðþrýstingi og meltingartruflunum hvers konar, s.s. harðlífi, vindgangi og niðurgangi.
Peppermint er oft kölluð höfuðhreinsir. Hún er notuð þegar flensa er að búa um sig og þá til innöndunar. Fólk sem er með lágan blóðþrýsting ætti ekki að nota peppermint, því hún lækkar blóðþrýsting. Hún er því góð fyrir þá sem hafa háan blóðþrýsting. Peppermint er mikið notuð til að deyfa t.d.vöðvaverki, við höfuðverkjum og mígreni. Einnig er hún notuð við gall- og lifrarvandamálum, gigt og æðahnútum.
Juniper er hreinsandi ( hjálpar til við hreinsun eiturefna úr líkamanum), notuð gegn unglingabólum , kýlum, exemi og appelsínuhúð(cellulitis), er vatnslosandi, styrkir taugakerfið og léttir á kvíða og streitu.
Sandalwood og Juniper saman er góð blanda við exemi og þurrki á húð.
Sandalwood er mikil jafnvægisjurt, notuð við þunglyndi, taugaspennu, streitu, svefnleysi,húðþurrki, psoriasis, magakrampa, niðurgangi, ógleði og hormóna-ójafnvægi. Sandalwood er mjög hreinsandi. Og hún er einnig notuð til slökunar og við íhugun.
Rose (Rose damascena) Þessi olía er mjög dýr en það þarf mjög lítið af henni og þessa olíu má nota á kornabörn. Rose er mjög góð fyrir húðina og einnig fyrir sálina. Sagt er að Roseolía opni hjartað. Ef fólk á erfitt með að tjá sig er gott að setja Rose á efri vör til að auðvelda samskipti. Er notuð við lélegri blóðrás, harðlífi, lifrarvandamálum, magabólgu vegna streytu, þunglyndi, svefnleysi, taugaspennu, höfuðverkjum, kvíða, húðvandamálum, sérstaklega þurrki og viðkvæmri húð og einnig er hún kynörvandi.
Þetta er all svakaleg upptalning hjá höfundinum (Sigrúnu Sól Sólmundsdóttur) og hér er samt ekki nærri allt sem hún þarna telur fram um lækningamátt ýmissa imkjarnaolía.
Fullyrðingar þessar eiga ekki við neinar sannanir eða rök að styðjast og sumar eiga jafnvel við alvarlega og hættulega sjúkdóma svo sem lifrarvandamál, sykursýki og sýkingar (“kýli”). Slíkt var kallað skottulækningar og varðaði við landslög áður en græðaralögin svokölluðu komu til.
Reyndar, til þess að gæta sannmælis þá verður að geta þess að það eru gömul sannindi að rósailmur geti verkað kynörvandi (sjá “Rose” í upptalningunni), en það er önnur saga.
Rannsóknir
Það er erfitt eða jafnvel ómögulegt fyrir alvöru vísindamenn að finna rannsóknafé til þess að rannsaka virkni einhvers sem er mjög ólíklegt að hafi raunverulegt gagn við sjúkdómum. Gagnrýnt hugsandi vísindamenn vilja líka frekar eyða orku sinni og ævistarfi í það sem er í það minnsta trúverðugt og líklegt til árangurs. Það hefur því ekki verið gert mikið af alvöru rannsóknum á gagnsemi ilmolíumeðferða en nóg samt eins og tilvitnun hér neðar í verk E. Ernst sýnir. Það má líka með nokkurri vissu treysta því að lyfjarisarnir eru búnir að þaulskoða þessi efni í leit að efnum sem búa má til lyf úr og græða á. Ekkert slíkt hefur komið fram enda eru þessi fyrirtæki ekki þekkt að því að birta neikvæðar niðurstöður úr slíkum leitum.
Söluaðilarnir eru hins vegar vægast sagt duglegir að búa til gervivísindalega flotta texta og plaköt (sjá myndadæmi) og safna uppnumdum vitnisburðum auðtrúa neytenda sem sanna ekki neitt svo sem allir ættu að skilja. Gríðarlegt safn greina og pistla má finna um skoðanakannanir, athuganir og rannsóknartilburði sem allt með tölu er rang-, mis- eða oftúlkað til þess að styðja við trúna á virkni olíunnar og þar með söluna. Stundum gæti maður haldið að viðkomandi hafi ekki einu sinni lesið greinarnar sem þeir vitna til, svo dæmalaus er vitleysan sem sölumenn túlka upp úr rannsóknagreinum sem fjalla oft um allt annað.
Þegar rökin bregðast þá nota ilmolíusalarnir sér gjarnan klassíska útúrsnúninginn um að ekki sé hægt að sýna áhrif óhefðbundnu efnanna með hefðbundnum vísindum því þau vísindi séu “einfaldandi” (e. reductionist) en slík vísindi geti ekki sýnt hin flóknu og dularfullu “heildrænu” (e. holistic) áhrif. Þetta er auðvitað rökleysa en eru algeng neyðarrök hjá sölumönnum ónýtra heilsumeðferða.
Ýmsum brögðum er sem sagt beitt til þess að láta þetta allt líta sannfærandi út og því miður er alltaf til nóg af fólki sem af óskhyggju, örvæntingu, græðgi, trúgirni eða leit að auðveldri lausn lætur glepjast.
Þeir sem hafa tekið saman það sem til er af trúverðugum rannsóknum um ilmkjarnaolíur og áhrif þeirra hafa einfaldlega komist að einni niðurstöðu: Að ilmkjarnaolíur hafi ekki getað sýnt neina virkni á sjúkdóma af neinu tagi aðra en lyfleysuáhrifin margfrægu (sjá neðar). Nægir þar að vitna í lækninn, náttúrulækninn, hómópatann, vísindamanninn og fyrrverandi prófessorinn í óhefðbundum lækningum Dr. Edzard Ernst sem tekur svo til orða:
To me, it seems fairly straight forward: Aromatherapy is not demonstrably effective for any condition. It also is not entirely free of risks. Its risk/benefit profile is thus not positive which can only mean that it is not a useful or recommendable treatment for anybody who is ill.
Lausleg þýðing mín:
Fyrir mér er það nokkuð ljóst: Ilmkjarnameðferð er ekki hægt að sýna fram á að hafi áhrif á neinn kvilla. Það er heldur ekki laust við hættur. Jafnvægi ávinnings og ógnar er því ekki jákvætt og það getur bara þýtt að það er ekki nothæf eða ráðleg meðferð fyrir neinn sem er sjúkur.
Dr. Ernst er reyndar sjálfur menntaður náttúrúlæknir meðal annars og vill gjarnan finna óhefðbundnar lækningar sem gefa árangur. Hann hefur skrifað heilmikið um hvaða óhefðbundnar aðferðir séu nothæfar. Við mælum eindregið með heimasíðu hans.
Góð og auðlesin grein er til á Wikipedia um efnið. Þar eru tveir sérlega áhugaverðir kaflar um áhrifamátt (skort hans öllu heldur ) og um öryggi þessara efna. Þetta skyldu allir lesa sem láta sig efnið varða. Vel er vitnað til heimilda þar.
Sannleikurinn
Hinn ljóti sannleikur er sá að ilmolíurnar eru framleiddar, auglýstar og seldar fyrst og fremst í gróðaskyni. Lilja Oddsdóttir (Einn aðstandenda Heilsumeistaraskólans í Reykjavík) vitnar í Young Living fyrirtækið sem framleiðir vörunnar sem hún auglýsir og kennir notkun á. Maðurinn á bak við það fyrirtæki, herra D. GaryYoung, er vægast sagt umdeildur og orðspor hans ófagurt. Hann græðir vel á því að framleiða efnin, predíka fyrir sértrúarsöfnuðinum sem safnast hefur kringum trúna á hans fræði, halda úti miklum lygavef um ágæti efnanna og selja þau í gegnum marglaga sölupýramíða. Hversu trúaðir sem sölumennirnir neðar í pýramídanum eru á dásemdir og mátt þessara efna þá er verknaðurinn, að selja vöru með röngum upplýsingum um notagildi og gagnsemi, jafn slæmur. Eina nafnið sem ég get ímyndað mér að réttilega lýsi ilmolíubaróninum sjálfum er Loddari, með stóru L-i. Hvaða titil má þá nota um þá trúgjörnu sem aðstoða hann við að auglýsa og selja vöruna? Græskulausir loddarar kannski.
Björn Geir Leifsson
Heimildir: upplyst.org