Fara í efni

Íslendingar önnur hamingjusamasta þjóð í Evrópu

Evrópuráðstefna um jákvæða sálfræði var haldin í Amsterdam 1. - 4. júlí og hélt Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðsstjóri hjá Embætti landlæknis, lykilerindi um efnahagskreppu, vellíðan og sjálfbærni ásamt tölfræðingnum Nic Marks.
Íslendingar eru almennt hamingjusamir
Íslendingar eru almennt hamingjusamir

Evrópuráðstefna um jákvæða sálfræði var haldin í Amsterdam 1. - 4. júlí og hélt Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðsstjóri hjá Embætti landlæknis, lykilerindi um efnahagskreppu, vellíðan og sjálfbærni ásamt tölfræðingnum Nic Marks.

Í erindi sínu fjallaði Dóra Guðrún um mikilvægi þess að stjórnvöld notuðu ekki einungis hagfræðilega mælikvarða til að meta árangur stjórnvaldsaðgerða heldur mætu jafnframt hamingju og vellíðan þegna sinna og ynnu markvisst að því að stuðla að betri líðan og auknum lífsgæðum.

Löngum hefur verið talið að aukinn hagvöxtur leiði ósjálfrátt til bættrar líðanar en svo er ekki raunin. Aukinn hagvöxtur getur komið vegna margvíslegra þátta sem hafa ekki endilega góð áhrif á samfélagið og því er mikilvægt að nota aðra mælikvarða samhliða eins og hamingju og vellíðan.

Dóra Guðrún fór yfir mælingar á hamingju og líðan Íslendinga fyrir og eftir bankahrun úr rannsókninni Heilsa og líðan Íslendinga sem sýna að hamingja 40% fullorðinna einstaklinga stóð í stað milli 2007 og 2009 meðan 30% fór hækkandi og 30% lækkandi.

Einnig kynnti hún niðurstöður úr rannsókninni Ungt fólk sem sýnir að hlutfall unglinga sem telja sig hamingjusama vex frá 2000 til 2010 samhliða auknum samverustundum með foreldrum.

Að lokum kynnti hún í fyrsta sinn nýjar tölur úr rannsókninni European Social Survey 2012-2013 sem sýndi að hamingjustig Íslendinga hefði aftur náð yfir 8 (á skalanum 0-10) og í samanburði 29 þjóða mældust Íslendingar í öðru sæti hamingjusömustu þjóða Evrópu á eftir Dönum.

Dóra Guðrún kjörin forseti Evrópusamtaka um jákvæða sálfræði.

Ráðstefnan var haldin í samvinnu við Evrópusamtök um jákvæða sálfræði  en á lokadegi ráðstefnunnar var Dóra Guðrún kosin forseti samtakanna og mun hún beita sér fyrir því að efla rannsóknir á jákvæðum eiginleikum mannsins og tengja gæðarannsóknir áfram við stefnumótun stjórnvalda og einnig við starf á vettvangi.

Heimild: landlaeknir.is