Bringur teknar og kryddaðar með kjúklingakrydd og penslaðar með barbequesósu. Þær síðan grillaðar og penslaðar með sósunni nokkrum sinnum á meðan. Sæt kartafla skorin niður i strimla og sett yfir þær ólífuolía og smá pipar, þær síðan settar í heitan ofn í um það bil 30 til 40 mínútur á 200 gráður og vil helst hafa þær næstum því stökkar. Salatinu er öllu blandað saman ásamt feta osti.
Ég ákvað að forvitnast hvað Ívar ætlar að gera í fríinu sínu sumar, en hann hefur nú þegar tekið forskot á sæluna og skellti sér til Flórída ásamt syni sínum í „stráka“ ferð.
„Ég er búinn að taka sumarfríið snemma þetta árið er ég fór ásamt syni mínum (22ára) til Flórída í maí. Þetta var svona strákaferð, þar sem við fórum að skjóta úr byssum í fyrsta sinn, fórum á Jet ski, Gó kart, sjó bretti og skelltum okkur til Miami. Tek svo kannski frí bara aftur í haust“.
Það fer ekkert fram hjá þér þegar þú skundar í stórmarkaðina, stóru skiltin af honum og samstarfsmanni hans Arnari Grant auglýsa Hámark drykkina og eins skemmtilegu leiknu auglýsingarnar þeirra í gegnum árin. En núna er komið nýtt myndband frá þeim í samstarfi við Tjarnagötuna og leikið á létta strengi ásamt þjóðþekktum einstaklingum.
Hér er svo myndbandið þar sem þú getur valið sjálf/ur útkomuna hjá þeim: Hvað ef...