Þetta er heldur hærra hlutfall en það sem fram kemur í könnun Landlæknisembættisins 2010-11 en niðurstaðan þar er sú að lýsisneysla er heldur lítil meðal íslenskra karla en aðeins 26% taka lýsi daglega og tíðnin er aðeins lægri meðal kvenna eða 21%. 60% karla taka aldrei lýsi og 69% kvenna. Sá aldurshópur karla sem er líklegastur til að taka lýsi daglega er 31-60 ára en meðal kvenna var það aldurshópurinn 61-80 ára. Neysla á lýsisperlum er mjög lítil samkvæmt niðurstöðum embættisins en aðeins 3% karla og 7,5% kvenna taka lýsisperlur. Ef niðurstöður könnuna Landlæknis eru teknar saman, fyrir karla og konur, fljótandi lýsi og lýsisperlur, má segja að 57,5% taki lýsi á einhverju formi daglega sem er nánast sama niðurstaða og við á Heilsutorgi fengum í okkar könnun.
Það er ljóst að Íslendingar mega taka sig á í lýsisneyslunni en gildi lýsis er mikið er snýr að inntöku á hinu lífsnauðsynlega vítmíni D-vítamíni en lesa má um gildi þess HÉR.
Heimild: Embætti Landlæknis, Niðurstöður könnunar á mataræði Íslendinga 2010-2011
Bestu kveðjur,
Fríða Rún Þórðardóttir
Næringarráðgjafi B.S.c : Næringarfræðingur M.S.c