Fara í efni

Ómega-3 fitusýrur og fóðrun húsdýra

Ómega-3 fitusýrur eru lífsnauðsynlegar fitusýrur sem við verðum að fá úr fæðunni.
Ómega-3 fitusýrur má líka finna í kjöti og eggjum.
Ómega-3 fitusýrur má líka finna í kjöti og eggjum.

Ómega-3 fitusýrur eru lífsnauðsynlegar fitusýrur sem við verðum að fá úr fæðunni.  Þær gegna mörgum mikilvægum hlutverkum í líkamanum, og eru eitt aðalbyggingarefni heilans, sjónhimnunnar og sáðfrumna.  Ómega-3 fitusýrur er að finna í öllum sjávarafurðum.  Einnig er minna virkt form þeirra að finna í valhnetum, brokkólí, sojaolíu, repjuolíu (raps, canola) og hörfræjum.  Meira er af ómega-3 fitusýrum í villtum jurtum en ræktuðum, og í villtum fiski en þeim sem alinn er í fiskeldiskerjum.  Við fáum líka dálítið af ómega-3 fitusýrum úr kjöti og eggjum. 

Villt dýr nærast á villtum jurtum, og þess vegna er meira af ómega-3 fitusýrum í kjöti af villibráð en af húsdýrum.  Magni ómega-3 fitusýra í afurðum húsdýra er þó hægt að stýra með fóðruninni.  Það er mikið af ómega-3 fitusýrum í grasi.  Þess vegna er kjöt af kúm og kindum ríkara af ómega-3 fitusýrum ef þau eru alin á grasi, heldur en kjöt af dýrum sem alin eru á korni á borð við rúg, bygg og hafra, eins og tíðkast í mörgum löndum. 

Þar sem ómega-3 fitusýrur er að finna í öllum sjávarafurðum er kjöt af kjúklingum og svínum sem alin eru að hluta til á fiskimjöli ríkara af ómega-3 fitusýrum en ef dýrin eru eingöngu alin á kjötmjöli eða korni.  Eggin verða líka ríkari af ómega-3 fitusýrum ef hænurnar fá fiskimjöl.

Ég vil því hvetja bændur landsins til að halda þeirri góðu venju að ala kýr og kindur á grasi, og fóðra kjúklinga og svín á fiskimjöli.  Nánar á www.heilraedi.is

Heimildir: Simopoulos AP. Lipids 2001;36 Suppl:S83. Simopoulos AP. Am J Clin Nutr 1999;70 Suppl:S560.  Clapham WM et al. J Agric Food Chem 2005;53:10068.  Wood JD and Enser M. Br J Nutr 1997;78 Suppl:S49.

Höfundur er doktor í heilbrigðisvísindum og rekur heilsuráðgjöfina Heilræði