Embætti landlæknis tekur undir umfjöllun Helga Sigurðssonar, prófessors og yfirlæknis krabbameinsdeildar Landspítalans, sem birtist á mbl.is í gær, 16.12.2014, undir fyrirsögninni Loddaraskapur af verstu gerð.
Landlæknir telur mikilvægt að sjúklingar vari sig á margvíslegum gylliboðum um meðferð þar sem vísindalegar rannsóknir hafa ekki sýnt fram á gagnsemi þeirra.
Sjá einnig: Það er verið að plata fólk.
Viðtal við Magnús Jóhannsson lækni hjá Embætti landlæknis Mbl.is 17.12. 2014
Heimild: landlaeknir.is