Fara í efni

Skráargatið innleitt á Íslandi

Nú hefur Skráargatið verið innleitt á Íslandi þegar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra undirritaði reglugerð um norræna Skráargatið.
Skráargatið
Skráargatið

nú hefur Skráargatið verið innleitt á Íslandi þegar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra undirritaði reglugerð um norræna Skráargatið.

Markmiðið með Skráargatinu er að neytendur geti á einfaldan hátt valið hollari matvöru.

Matvælastofnun og Embætti landlæknis standa sameiginlega á bak við Skráargatið og hafa unnið að innleiðingu þess. Um er að ræða opinbert samnorrænt merki sem finna má á umbúðum matvara sem uppfylla ákveðin skilyrði varðandi innihald næringarefna:

-  Minni og hollari fita

-  Minni sykur.

-  Minna salt.

-  Meira af trefjum og heilkorni.

Skráargatið auðveldar hollara val og þar með að fara eftir opinberum ráðleggingum um mataræði því vörur sem bera merkið eru hollari en aðrar vörur í sama flokki sem ekki uppfylla skilyrði til að bera merkið.

Matvælaframleiðendum er frjálst að nota Skráargatið á sínar vörur, uppfylli þær ákveðin skilyrði varðandi innihald næringarefna. Auk þess að vera upplýsandi fyrir neytendur hvetur merkið matvælaframleiðendur til að þróa hollari matvöru og stuðlar þannig að auknu úrvali á hollum matvælum á markaði.

Það er hlutverk Matvælastofnunar og heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga að fylgjast með að farið sé eftir reglum um notkun merkisins.

Nú er "einfalt að velja hollara" Kynntu þér málið HÉR.

Einnig er hægt að lesa spurningar og svör um Skráargatið HÉR