Vakin er athygli á því að 4 og 5 ára börn eiga nú einnig rétt á gjaldfrjálsum tannlækninum.
Greiðsluþátttaka sjúkratrygginga er háð því að foreldrar skrái barn/börn sín hjá heimilistannlækni og því eru foreldrar hvattir til að skrá barn/börn sín í Réttindagátt Sjúkratrygginga Íslands. Tannlæknar geta einnig séð um skráninguna, sé þess óskað.
Mælt er með að skrá barn hjá heimilistannlækni þegar það nær eins árs aldri. Lista yfir heimilistannlækna má nálgast á vef Sjúkratrygginga Íslands.
Samningurinn tekur einnig til barna í bráðavanda, sem eru yngri en þriggja ára og búa við erfiðar félagslegar aðstæður. Tilvísun þarf að berast tannlækni frá heilsugæslu, barnaverndar- eða félagsmálayfirvöldum vegna þessara barna og skilyrði að Sjúkratryggingar Íslands samþykki umsókn frá tannlækni á grundvelli tilvísunar.
Þann 1. janúar 2018 verða tannlækningar allra barna yngri en 18 ára greiddar að fullu af Sjúkratryggingum Íslands, að frátöldu 2.500 kr. árlegu komugjaldi.
Sjá nánar á vef Sjúkratrygginga Íslands
Hólmfríður Guðmundsdóttir
tannlæknir