Já, þú ert svo sannarlega með mataræðið á hreinu.
- Ertu ennþá með reiðar hugsanir?
- Finnst þér þú vera óverðug/ur?
- Ertu ennþá með hugsanir um sektarkennd, hræðslu, skömm, sorg eða hatur?
- Ertu að velta þér upp úr peningum eða peningaleysi réttara sagt?
- Áttu erfitt með að fyrirgefa?
- Er hugur þinn á fullu í reiði og tengdum tilfinningum og þú átt erfitt með að róa þig niður?
Allir grænir drykkir í heiminum geta ekki komið í veg fyrir svona hugsanir, allar þessar neikvæðu hugsanir.
Líkamar okkar eru eins og útprentun af okkar hugarástandi þannig að það sem við hugsum kemur til með að koma í ljós á einhverjum stað í líkamanum.
Hver einasta hugsun sem við höfum (og þær eru á bilinu 40 til 60 þúsund á hverjum degi) hafa áhrif á líkamann og okkar líkamlegu viðbrögð, og einnig tilfinningar okkar.
Ef við viljum virkilega vera heilbrigð þá er hugurinn fyrsti staðurinn sem við þurfum að byrja á.
Ef rætur trésins eru í lélegu ástandi þá skiptir engu máli hversu mikið þú vökvar það og nærir, tréð mun aldrei verða heilbrigt.
Það eru margar leiðir til að ná heilbrigðu og jákvæðu hugarfari, má þar nefna, að lesa góða bók sem kennir þér jákvæðni, stunda jóga reglulega eða tai chi og heilaæfingar eins og sudoku.
Ansi margar rannsóknir hafa sýnt fram á að dagleg hugleiðsla hefur sýnt jákvæðar framfarir í heila og bætir tilfinningalegt ástand og það sem meira er, bætir ónæmiskerfið. Hugleiðsla hefur hjálpað fólki sem þjáist af þunglyndi, svefnleysi, kvíða og meira að segja MS og krabbameini.
Í gegnum hugleiðsluferlið ertu að róa hugan niður sem mun þá í leiðinni róa líkamann. Og þegar líkaminn er rólegur og afslappaður þá er taugakerfið í jákvæðu ástandi.
Þegar þessu er náð ertu komin í jafnvægi með líkama og sál. Dagleg hugleiðsla fyllir þig ró, þú finnur fyrir hamingju og ert þar af leiðandi mun heilbrigðari.
Það eru margar leiðir til að hugleiða. Þú getur prufað hugleiðslu með öndun sem dæmi.
Ef þú hefur áhuga á hugleiðslu þá mælum við með því að þú kynnir þér málið og skellir þér í jóga.