Haustið og heilsan
Haustið er komið, veðrið hefur breyst til muna á örfáum dögum, gróðurinn að breytast og önnur lykt komin í loftið. Það er kaldari tími framundan umvafinn dulúð, krafti og fegurð. Skólarnir að byrja, starfssemi fyrirtækja að komast á skrið að nýju og undirbúningur fyrir veturinn hafinn. Það er eitthvað ánægjulegt við haustið, maður er fullur af orku eftir sumarið og reiðubúinn að takast á við verkefni þau sem liggja fyrir með eftirvæntingu.
Þetta er skemmtilegur tími og fallegur þegar litir umhverfisins breytast og næturfost og norðurljós láta á sér kræla á ný. Flest okkar fá ný hlutverk og annríkið eykst á þessum sama tíma, dagarnir verða skipulagðari og verkefnin fjölbreyttari fram að næsta sumri.
Á þessum tíma eru margir sem ætla sér að komast í gott form, byrja að æfa af krafti að nýju. Líkamsræktarstöðvarnar fyllast af fólki sem hefur „trassað“ hreyfingu sína um sumarið og vill ná af sér grillsteikunum. Í það minnsta á að komast í kjólinn fyrir jólin, lyfta brasilíska rassinum eða verða fit eins og stjörnunar. Þetta er allt gott og blessað og vonandi ná allir þeim markmiðum sem þeir hafa sett sér, svo lengi sem þeir fylgja almennum leiðbeiningum og fara ekki fram úr sjálfum sér með ofþjálfun eða rangri líkamsbeitingu, ofneyslu próteindrykkja og fæðubótarefna eða annarrar viðlíka vitleysu. Þá ættu viðkomandi ekki að láta fólk sem hefur litla sem enga menntun né þekkingu á starfssemi líkamans segja sér fyrir verkum í þjálfun eða hvað næringu snertir.
Mikilvægast er að horfa til þeirra þátta sem skipta okkur öll máli, en það eru reglubundin hreyfing, hollt mataræði, nægur svefn og hæfilegt álag. Allir ættu að eiga skilgreind verkefni við sitt hæfi og vera í góðum samskiptum við annað fólk. Þetta eru þeir þættir sem telja til heilbrigðra lífshátta og skila sér í bættri heilsu og líðan.
Nú þegar haustið er komið er mikilvægt að muna eftir þessum grundvallarþáttum, kveisur og pestir herja frekar á þá sem eru undir miklu álagi og streitu og hugsa síður um sjálfan sig. Þá er einnig talið að sjúkdómar ýmis konar geti átt orsök sína í slíku ójafnvægi. Það er skynsamlegt að verjast Influensu með bólusetningu sem herjar alla jafna á þessum tíma, einnig er ráðlegt að nota bætiefni sem sannað hafa gildi sitt eins og Omega 3 fitusýrur og D vítamín sem okkur öll skortir yfir vetrartímabilið. Þeir sem reykja ættu að stefna að því að hætta því en víst er að reykingafólki er hættara við sjúkdómum í öndunarfærum svosem eins og berkjubólgu og lungnabólgu.
Því er skynsamlegt að verja hæfilegum tíma til að rækta sjálfan sig og sína nánustu. Það er auðvitað ekki til nein töfraformúla þegar kemur að heilbrigði einstaklinga sem eru jafn mismunandi og þeir eru margir. Þó er ljóst að ef við náum því markmiði að halda góðu jafnvægi milli þeirra þátta sem ég taldi upp að ofan og hugsum jákvætt og uppbyggilega er líklegra en ekki að heilsa okkar verði góð.
Tökum því á móti haustinu og komandi vetri með gleði og eftirvæntingu, fögnum fjölbreytileika þeirra verkefna sem fyrir okkur liggja og setjum markið hátt auk þess að muna eftir að njóta lífsins, því það mun svo sannarlega skila sér í bættri heilsu okkar.
Teitur Guðmundsson, MD