Ef þú ert með hjartasjúkdóm getur inflúensutíminn reynst þér skeinuhættur. Dauðsföll af völdum inflúensu eru algengari hjá hjartasjúklingum en nokkrum öðrum sjúklingahóp með króníska sjúkdóma.
Sem betur fer getur inflúensusprauta minnkað hættuna á því að þú fáir flensuna verulega og jafnvel komið í veg fyrir fylgikvilla af völdum hennar ef þú færð hana á annað borð.
Læknar hafa löngum ráðlagt eldra fólki og þeim sem eru viðkvæmir fyrir eða langveikir að fá sér inflúensusprautu en horfa nú til þess að leggja mikla áherslu á mikilvægi þess að hjartasjúklingar geri slíkt hið sama.
Hversvegna er innflúensusprautur mikilvægar fyrir þá sem þjást af hjartasjúkdómum?...LESA MEIRA