Á Íslandi tíðkast það sem betur fer ekki að börn og unglingar séu sötrandi kaffi. Hvers vegna er það gott að börn og unglingar drekki ekki kaffi? Í kaffinu eru ýmis efni sem við viljum ekki að börnin okkar fái og ber þar helst að nefna örvandi og ávanabindandi efnið koffín.
Kaffi- og gosdrykkja á Íslandi er býsna algeng og súkkulaðiát með mesta móti. Í nánast öllu dökku gosi og súkkulaði er koffín. Því myndi margur spyrja hvort viðbót af koffíni sé einhver skaðvaldur? Svarið við þeirri spurningu er einfalt já og á engan hátt ásættanlegt að við gerum illt verra og bætum enn frekar við koffínneysluna hjá íslenskum börnum og unglingum. Undirritaður skrifaði grein í Morgunblaðið um koffín fyrir nokkrum árum en nú er svo komið að þörf er á að fjalla aftur um koffín því neysla barna og unglinga á orkudrykkjum, stútfullum af koffíni, hefur aldrei verið meiri.
Áður en lengra er haldið er mikilvægt að skilgreina hvað orkudrykkir eru og hvað þeir eru ekki, því mikils ruglings gætir meðal foreldra um þetta. Ekki er til formleg skilgreining á orkudrykkjum en þeir eiga það allir sameiginlegt að vera með talsvert miklu magni af koffíni. Þeir eru oftast í 250 eða 500 ml álstaukum en Egils Orka er þó undantekning en hún er seld í plasti. Flestir orkudrykkir eru einnig með viðbættum vítamínum og nokkrir með ginsengi og guarana sem er uppspretta koffíns. Dæmi um orkudrykki eru Red Bull, Euroshopper, Burn, Cult og Orka. Orkudrykkir eru ekki Powerade, Gatorade, Soccerade, Leppin ofl. slíkir drykkir í 500 ml plastflöskum, oft í aðlaðandi litum. Þessir drykkir kallast kolvetna- eða íþróttadrykkir og eru ætlaðir til notkunar í íþróttum þar sem svitatap er töluvert.
Orkudrykkir eru heldur ekki mjólkur-/próteindrykkir, t.d. Hámark, sem gott getur verið að neyta strax eftir erfiða æfingu eða í einstaka skipti sem millimál. Orkudrykkir eru heldur ekki gosdrykkir þó svo að magn koffíns sé oft ansi hátt í gosdrykkjum. Orkudrykkir eru ýmist sykurlausir (með sætuefnum) eða stútfullir af sykri.
Um koffín
Koffín er efni sem viðurkennt er til matarframleiðslu. Oft er það sett í matvæli sem bragðefni en einnig eru dæmi um að koffín sé sett í matvöru vegna virkni efnisins á líkamann og eru orkudrykkir gott dæmi um slíkt. Mörg mismunandi sjónarhorn koma iðulega fram þegar talið berst að koffíni. Jack James var í viðtali í Fréttablaðinu 20. nóv. 2010 þar sem hann reifar skaðsemi/skaðleysi koffíns. Hann bendir réttilega á að það sé vitað að koffín hækki blóðþrýsting, það getur haft áhrif á virkni ýmissa lyfja og að það geti haft, þegar þess er neytt í of miklu magni, neikvæð áhrif á fóstur. En það er fleira sem benda má á varðandi koffínneyslu. Neysla og ofneysla koffíns getur valdið höfuðverk, svima, kvíða, einbeitingaleysi, auknu þvaglosi, óþægindum í meltingarvegi, breytingum á hegðun og ógleði. Í einhverjum tilfella hafa menn ráðlagt fólki frá því að neyta koffíns og áfengis saman en mögulegt er að slíkt geti leitt til alvarlegra hjartsláttartruflana.
En af hverju er orkudrykkja þá neytt ef áhrifin af koffíni eru svona slæm? Það er vegna örvandi áhrifa koffíns en efnið hefur örvandi áhrif á miðtaugakerfið og eru sterkustu rökin fyrir áhrifum koffíns á líkamann bundin við þennan þátt. Þegar fólk neytir koffíns, t.d. með drykkju orkudrykkja, þá hressist það. En þessi áhrif eru skammvinn og oft er fólk þreyttara þegar áhrif koffíns dvína en áður en koffíns var neytt. Ávinningur neyslunnar er því í raun enginn.
Er þá einhver ástæða til þess að gefa börnum okkar og unglingum orkudrykki? Nei alls ekki og hafa ber í huga að áhrif koffíns á líkamann eru á hvert kg. líkamsþyngdar og því eru áhrifin mun meiri á smáa líkama en stóra. Auk þess eru orkudrykkir oftast nær fullir af sykri og ekki er á bætandi í sykurneyslu barna og unglinga á Íslandi.
Gaman er að nefna að ef neyslumynstur barna og unglinga á gosdrykkjum myndi breytast og í stað hefðbundinna gosdrykkja myndu þau t.d. drekka Klettakók þá gæti maður fært rök fyrir því að sykurneysla þessa hóps yrði helminguð! Hér er gert ráð fyrir því að börn og unglingar „þyrftu" ennþá að drekka gos en best væri að sleppa því. En hvernig má þetta vera? Með því að skipta um tegund þá er sykurneyslan helminguð? Í kóki frá Klettagosi er meira en helmingi minna af sykri en í öðru slíku gosi frá hinum framleiðendunum. Það munar um minna þegar allir þessir þúsundir lítra renna, ár hvert, ofan í börnin okkar og unglinga!
Af hverju leyfum við börnum okkar að drekka ígildi kaffis? Tja, og reyndar rúmlega ígildi því hefðbundinn orkudrykkur inniheldur oft meira magn koffíns en hefðbundinn kaffibolli auk þess sem flestir orkudrykkir innihalda líka mikinn sykur og óþarfa magn af vítamínum og öðrum örvandi efnum.
Sýnum ábyrgð og fylgjumst með börnunum okkar! Við endurtökum ekki uppeldi þeirra!
Steinar B.,
næringarfræðingur
www.steinarb.net
Þessi pistill er eign höfundar og má hvorki afrita hann né nota efni hans án leyfis.