Hjarta- og æðasjúkdómar eru algengasta dánarorsök kvenna á Íslandi líkt og annarsstaðar í heiminum og látast nærri jafnmargar konur og karlar vegna þessara sjúkdóma. Algengustu dánarorsakirnar eru vegna blóðþurrðar- og heilaæðasjúkdóma. Einkenni hjartasjúkdóma eru ekki alltaf þau sömu hjá konum og körlum. Fyrir það fyrsta er hjartað í konum hlutfallslega minna en í körlum og fyrstu merki sjúkdómsins koma iðulega ekki fram fyrr en tíu árum seinna en hjá karlmönnum.
Einkenni hjartaáfalls
Karlar og konur finna ekki endilega fyrir sömu einkennum við hjartaáfall. Algeng einkenni sem flestir tengja við hjartaáfall eru: þyngsli eða verkir fyrir brjósti oft með leiðni út í handleggi, háls, kjálka eða milli herðablaða. Stundum fylgir ógleði og kaldsviti. Einkenni kvenna geta þó oft líkst meltingartruflunum og er algengt að þær finni fyrir slappleika og þreytu, óeðlilegum kvíðaköstum sem og meltingartruflanir eða uppþembu.
Fjölmargir áhættuþættir
Áhættuþættir hjarta- og æðasjúkdóma á meðal íslenskra kvenna eru: ofþyngd, hreyfingarleysi, blóðfituröskun, háþrýstingur, reykingar og sykursýki. Flestir þessara áhættuþátta eru einkennalausir og þess vegna er nauðsynlegt að fara í áhættumat til greiningar reglulega. Mælt er með því að einkennalausar konur, 40 ára og eldri, fari í greiningu á fimm ára fresti. Einkennalausar konur yngri en 40 ára, sem hafa ættarsögu um hjarta- og æðasjúkdóma og/eða ættgenga blóðfituröskun, ættu einnig að fara reglulega í áhættumat.
Mataræði og hreyfing mikilvægustu forvarnirnar
Kyrrsetulíf og lélegt mataræði eru helstu áhættuþættir hjartasjúkdóma það er því nauðsynlegt að konur hugi vel að þessum þáttum; þjálfi hjartað, auki neyslu trefja og minnki neyslu hertra transfitusýra.
Til að ná sem bestum árangri er mælt með því að stunda þolþjálfun í a.m.k. 30 mínútur samfleytt á dag og skulu æfingarnar miðast að því að auka hjartslátt.
Trefjar hægja á upptöku kolvetna í blóðrás og hafa þannig góð áhrif á stjórnun blóðsykurs auk þess sem þær geta lækkað kólesteról í blóði. Neysla trefja getur einnig verið góð varðandi þyngdarstjórnun því þær koma í staðinn fyrir orkuríkari matvæli.
Transfitusýrur myndast þegar fljótandi olía er hert að hluta til en það er gert til að lengja geymsluþol matvöru. Rannsóknir síðustu ára hafa leitt í ljós að transfitusýrur hafa slæm áhrif á hjarta- og æðakerfið og einnig leikur grunur á að mikil neysla þessara fitusýra geti átt þátt í tíðni sykursýki tvö.
GoRed átakið
GoRed átakið er alheimsátak á vegum World Heart Federation sem miðar að því að fræða konur um áhættuþætti, forvarnir og einkenni hjarta- og æðasjúkdóma. Stefnuskrá Evrópu í þessum málum er að kortleggja hvernig forvörnum þessara sjúkdóma er háttað í heimsálfunni. Hjartavernd er þátttakandi í verkefninu fyrir Íslands hönd og má frekari upplýsingar um verkefnið er að finna á vefsíðunni www.gored.is.
Nokkrar staðreyndir
• Árlega deyja um 1800 Íslendinga, þar af 700 manns (40%) úr hjarta- og æðasjúkdómum.
• Árið 2005 létust í kringum 360 karlar og 330 konur úr hjarta- og æðasjúkdómum. Það eru að meðaltali tveir Íslendingar (einn karl og ein kona) á dag.
• Árið 2005 dóu 150 konur úr kransæðasjúkdómi á meðan 56 konur dóu úr lungnakrabbameini og 31 úr brjóstakrabbameini.
• Þetta er mikilvægt að hafa í huga þegar rætt er um kvennaheilsu því sjaldan er það í sviðsljósinu að aðaldánarorsök kvenna sé kransæðasjúkdómur.
Heimild: hjartalif.is