Fjölbreytni er lykillinn að hollu mataræði þar sem engin ein fæðutegund inniheldur öll þau næringarefni sem líkaminn þarfnast. Hver fæðuflokkur hefur sína sérstöðu. Á NMB getur þú lesið þér til um hvaða fæðutegundir eru helstu uppsprettur lykilnæringarefna sem vitað er að hafa þýðingu fyrir fósturþroska. Með því að svara næringarkönnuninni færð þú gott heildaryfirlit yfir mataræði þitt og hvað þú getir gert til að auka hollustu fæðunnar.
Notkun á sérfæði hefur aukist meðal almennings á Íslandi á síðastliðnum árum. Má þar nefna lág-kolvetnamataræði, steinaldarmataræði, grænmetisfæði og fleira. Fáar rannsóknir hafa kannað áhrif sérfæðis á meðgöngu á heilsu móður og barns. Hins vegar eru uppsprettur lykilnæringarefna fyrir fósturþroska í íslensku mataræði vel þekktar. Fáir þú meldingu um að hugsanlega sé neysla ákveðinna næringarefna of lítil (fremst í „samantekt“ svara við næringarkönnuninni) skaltu ræða málin við heilbrigðisstarfsmann í Heilsugæslunni og óska eftir tilvísun til næringarráðgjafa eða næringarfræðings sem getur gefið þér öruggar einstaklingsmiðaðar leiðbeiningar um val bætiefna.
Önnur bætiefni eru ekki ráðlögð á Íslandi út frá lýðheilsufræðilegum sjónarmiðum (það er fyrir allar konur). Hins vegar gætu sumar þungaðar konur þurft á öðrum bætiefnum að halda, til dæmis:
Mælt er með því að þungaðar konur leiti til löggilts næringarfræðings eða næringarráðgjafa við val á bætiefnum á meðgöngu og brjóstagjöf. Notkun bætiefna gerir ekki alltaf gagn og getur jafnvel verið skaðleg sé neysla næringarefna úr fæðu fullnægjandi. Á þetta sérstaklega við um A-vítamín, en einnig joð og fleiri efni.
Texta er óheimilt að afrita á nokkurn hátt nema með leyfi rétthafa. ©NMB 2014
Heimildir
Fólat. Fyrir konur sem geta orðið barnshafandi. Lýðheilsustöð, Miðstöð mæðraverndar og Landlæknisembættið 2007.
Matur og meðganga. Fróðleikur fyrir konur á barneignaaldri. Lýðheilsustöð, Heilsugæslan og Matvælastofnun 2008.
Nordic Nutrition Recommendations 2012.Integrating nutrition and physical activity. Nordic Council of Ministers 2014.http://www.norden.org/en/publications/publikationer/2014-002
Ráðlagðir dagskammtar (RDS) af ýmsum vítamínum 2013. Embætti landlæknis.
Textinn ef fenginn af síðu www.nmb.is og birt með góðfúslegu leyfi höfundar