Fara í efni

Alfaalfa spírur eru taldar styrkja ónæmiskerfið

Alfaalfa spírur
Alfaalfa spírur

Alfalfaspírur eru taldar styrkja ónæmiskerfið og hafa lengi verið notaðar sem jurtalyf í Kína, á Indlandi og í Mið-Austurlöndum.

Alfalfaspírur eru auðugar af estrogenlíkum hormónum, sem geta dregið úr einkennum tíðahvarfa og virkað sem forvörn gegn beinþynningu og hjartasjúkdómum. Þær innihalda blaðgrænu og mikilvæg vítamín; A, C, E, K og B6. Jafnframt hafa þær að geyma kalsíum, járn, magnesíum, fosfór, kalíum, natríum, sink og prótein, ásamt fjölda jurtaefna sem stuðla m.a. að lækkun LDL kólesteróls í blóði.

Þær eru uppáhaldsspírur barnanna.

Ljósmynd: Áslaug Snorradóttir