Fara í efni

Andstæða þakklætis er höfnun - Guðni með hugleiðingu á föstudegi

Andstæða þakklætis er höfnun - Guðni með hugleiðingu á föstudegi

Andstæða þakklætis er höfnun, viðnám, sjálfsvorkunn, þreyta og skortur.

Í nútíma samfélagi verjum við mikilli orku í að ætla að verða hamingjusöm og við verðum vissulega þakklát inn á milli – helst þegar við höfum náð tilteknum árangri eða markmiðum.

Við lítum oft á gjafir tilverunnar sem áreiti frekar en ábendingu; frekar en einfalda staðreynd í heiminum sem okkur býðst að fást við. Þannig gerum við lítið úr gæfu-gjöfunum og gerum bókstaflega ekkert úr ógæfu-gjöfunum; úr árekstrum sem hreyfa mikið við okkur.

Samt felast mestu tækifærin í þeim atburðum sem opinbera okkur sjálf; þeim sem áreita okkur.
Þakklæti er ljós.
Vanþakklæti er skortur á ljósi.