Fara í efni

Bakaður silungur með fetaosti og graslauk með léttri jógúrt sósu

Bakaður silungur með fetaosti
Bakaður silungur með fetaosti
Fyrir 4
 
Innihald:
800 g silungsflök
100 g fetaostur
100 g Vorlaukur fínt skorinn
2 msk graslaukur saxaður ekki mjög fínt
100 g haricot baunir fínt skornar
Salt og nýmalður svartur pipar
 
Aðferð:
Smyrjið eldfastform með smjöri, raðið silungsflökunum í formið og kryddið með salti og nýmuldum svörtum pipar. 
Stráið yfir vorlauk, strengjabaunum og graslauk. Setjið að lokum yfir fetaostinn. 
Bakið við 180°C í 10-15 mínútur fer allt eftir stærð silungsins. Einnig er hægt að nota lax í þennan rétt. 
Berið fram með sýrðum rjóma með  graslauk og lauk, fersku salati og nýjum soðnum kartöflum.