Fara í efni

Blómstrunin - hugleiðing frá Guðna

Hugleiðing dagsins.
hugleiðing á þriðjudegi~
hugleiðing á þriðjudegi~

Að horfa á blómstrunina

Blómið opnast eins og því ber; eins og alltaf var ætlunin.

Í innsæinu fylgist hjartað með því hvernig þú blómstrar; það sér blómstrunina skýrt og skært og dæmir ekkert í framgöngunni.

Í innsæi er hjartað fullt lotningar, það dáist að því sem á sér stað og þú nýtur þess að vera kraftaverk.
Allt er opinberað.