Caj P kjúklingaspjót - geggjað á grillið
Bragðmikil kjúklingaspjót á grillið.
Hráefni
1 poki Rose Poultry úrbeinuð kjúklingalæri
1 dl Caj P original grillolía
Grænmeti eftir smekk
Leiðbeiningar
1. Skerið lærin í helming. Hellið Caj P sósunni yfir.
2. Látið standa í ca. 1-2 klst eða eftir smekk.
3. Þræðið til skiptis kjúkling og grænmeti upp á grillpinna og grillið í ca. 20 mín eða þar til lærin eru fullelduð.