Fara í efni

Ég er með afar stórar geirvörtur, og þær standa beint út alla daga. Hvað get ég gert?

Við sem erum með venjulegar eða litlar geirvörtur könnumst líka við svona vandamál.
Við konur þekkjum þetta vandamál
Við konur þekkjum þetta vandamál

Við sem erum með venjulegar eða litlar geirvörtur könnumst líka við svona vandamál.

Það er ekkert eins pirrandi og þegar þær standa grjótharðar beint út í loftið og sjást í gegnum bolinn sem þú ert í. Og þú ert bara á leið út í búð eða eitthvað álíka og svo sannarlega ekki að reyna að vera agalega heit og kynþokkafull.

Þetta er gott ráð við útstæðum geirvörtum.

Geirvörtur koma í öllum stærðum og þær eru allar eðlilegar, litlar, stórar og stærri.

Eins og flestir vita að þá harðna og bólgna geirvörtur þegar við verðum kynferðislega æstar. Þetta gerist líka þegar litli vöðvinn í kringum geirvörturnar örvast við kulda eða ef eitthvað nuddast við þær, eins og bolur eða brjóstahaldari.

Besta lausnin er þessi: Notaðu brjóstahaldara sem er fóðraður. Þeir virka afar vel og stífar geirvörtur sjást ekki í gegnum þá.

Ef þú notar ekki brjóstahaldara, vertu þá í bol eða peysu úr þykkara efni en vanalega til að gera geirvörtunum erfiðara fyrir að standa út og virka eins og auglýsing framan á þér.

Gott ráð frá Heilsutorg.is