Einfaldur kókos & karrý baunapottréttur
Þetta er ótrúlega einfaldur og góður grænmetisréttur
Grænmetisréttur fyrir ca. 4
Innihald: / kókosolía til steikingar / 1 laukur / 1 bolli (þurrar) rauðar eða grænar linsubaunir / 1 sæt kartafla / 2 stórar gulrætur / 1/2 tsk turmeric / 1 msk karrý / 1 tskengiferkrydd / smá salt / nokkur svört piparkorn / 3 - 3 1/2 bolli vatn / 1 mskgrænmetiskraftur / 1/2 bolli kókosmjólk.
- Laukurinn skorinn frekar smátt.
- Skerið sætu karföfluna niður í teninga og gulræturnar langsum.
- Hitið olíuna og mýkið laukinn.
- Bætið svo kartöflunni, gulrótunum, baununum og kryddinu útí.
- Setjið vatnið út í pottinn og hitið að suðu, minnkið þá hitann og sjóðið í amk. 25 mínútur. Mér finnst betra að nota minna vatn en meira, annars verður þetta meira súpa.
- Bætið kókosmjólkinni út í.
- Berið fram heitt og jafnvel með quinoa.
Þetta er ótrúlega einfaldur og góður grænmetisréttur fyrir ca. 4. Mér finnst algjör snilld að gera frekar stóra uppskrift og eiga daginn eftir í afgang til að taka með í vinnuna.
Þar sem ég er að taka út allan sykur og korn (þá sleppi ég quinoa-inu) í ákveðinn tíma er ég eiginlega búin að lifa á svona mat sem er alls ekkert mál þegar maður dettur niður á svona lostæti því þetta er mjög bragðgóður og ljúffengur pottréttur sem fljótlegt er að gera og frábært að bera fram með fullt af grænmeti.
Uppskrift frá http://www.detoxinista.com