Er vit í vímuefnavísindunum? Fyrirlestur prófessors David Nutt 16.september, kl. 16.30 stofu 102 á Háskólatorgi, Sæmundargötu 4 101 Reykjavík
David Nutt prófessor
Prófessor David Nutt flytur opinberan fyrirlestur um vímuefnamál og vímuefnastefnu, þriðjudaginn 16. september, kl. 16:30 – 18:00 í stofu 102 á Háskólatorgi.
Að fyrirlestri loknum verða pallborðsumræður.
Fyrirlesturinn er samstarfsverkefni Félags- og mannvísindadeildar Háskóla Íslands og Snarrótarinnar – samtaka um borgaraleg réttindi.
Dr. Helgi Gunnlaugsson, prófessor, verður fundarstjóri.
Fyrirlesturinn er ókeypis og öllum opinn.
Sjá nánar á Facebook HÉR.