Fara í efni

Ertu dimmir eða birtir ? - Hugleiðing frá Guðna lífsráðgjafa

Hugleiðing á mánudegi.
Ljósmynd: Eran Yerushalmi
Ljósmynd: Eran Yerushalmi

Ertu dimmir eða birtir?

Í loftljósinu er ljósapera sem skín skært og varpar jöfnu og fallegu ljósi yfir alla hluti í herberginu. Á veggnum er snúningstakki sem stýrir því hvort orkan úr rafmagnsleiðslunum verður fyrir viðnámi eða ekki. Við köllum þetta dimmi.

Einhverra hluta vegna kjósum við að lifa í myrkri eða hálfmyrkri í stað þess að snúa takkanum þannig að við sjáum handa okkar skil, sjáum hlutina í kringum okkur, sjáum fólkið sem við segjumst elska. 

Álögin sem við leggjum á okkur sjálf með fjarveru og höfnun eru sannkallaður dimmir; leið til að stjórna doðanum og halda líkama og sál í rétt svo mátulegu myrkri til að við tórum.

Af hverju köllum við snúningstakkann ekki birti? Af hverju vitum við og skiljum að það er ekkert mál að snúa birtinum á veggnum í botn og lýsa upp herbergið – en höldum áfram að lifa í myrkrinu í eigin lífi?