Fagmaðurinn og fúskarinn - Guðni með hugleiðingu á laugardegi
Hver er munurinn á fagmanni og fúskara? Fagmaðurinn sparkar auðvitað aldrei í sig liggjandi heldur leiðréttir eigin mistök með kærleika og náð og hjálpar sér á fætur. Fúskarinn sparkar í sig liggjandi og nýtir áfallið sem felst í eigin „mistökum“ til að örva skortdýrið og hvetja það til dáða.
Geturðu ímyndað þér ofurkraftinn sem þú getur fengið aðgang að? Með því einu að hætta að dæma þig?
Þú hefur öðlast innsýn og hæfileika til að standa með þér í stað þess að yfirgefa og svíkja þig og hafna. Þegar þú stendur frammi fyrir tækifæri eða áskorun í lífinu velurðu að svara áskoruninni – eftir að hafa skoðað af skínandi innsæi hvaða möguleikar eru fyrir hendi. Þú hefur öðlast innsýn í hegðunarmynstur þitt; öðlast fullt innsæi.
Með því að rækta vitundina í daglegu lífi hefurðu tekið fulla ábyrgð og fyrirgefið þér á öllum sviðum lífsins. Þegar þú ert í vitund og til staðar verður þú vitni að eigin tilveru og getur fylgst með ýmsu sem gerist innra með þér og í kringum þig, án þess að leggja sérstaka merkingu í það. Þú ert hlutlaust vitni – áhorfandi sem nýtur þess sem fram fer.
Innsæið er leiftur – skilaboð sálarinnar.