Framstig - Frábær æfing
Viltu meiri virkni í kvið eða draga úr óþægindum í mjóbaki eða mjaðmagrind í framstiginu?
Fylgstu með myndbandinu hér fyrir neðan, prófaðu þessi atriði og sjáðu hvort þú náir að draga úr óþægindunum.
Atriðin eru eftirfarandi:
- Prófaðu að breyta stöðunni á mjóbakinu. Hallaðu mjaðmagrindinni fram eða aftur og sjáðu hvaða áhrif það hefur á æfinguna. Ef þú setur rófubeinið aðeins undir þig minnkar fettan í mjóbakinu.
- Settu hendur á mjaðmakambana og athugaðu að þeir haldist beinni í línu. Þannig minnkar þú snúning á mjaðmagrindinni sem eykur virkni í kvið og getur dregið úr óþægindum frá mjaðmagrind, mjóbaki og/eða mjöðmum.
- Fylgstu með stöðunni á hnénu. Ef við höldum því í línu við tær í stað þess að missa það inn á við aukum við virknina í rassvöðvunum.
Ef þú færð óþægindi í hnén við framstig getur verið gott að hugsa um að setja annan fótinn fram og setjast aftur og niður þegar við færumst niður frekar en að stíga fram og keyra líkamann og fremra hnéð fram.
Myndbandið er unnið fyrir fræðsluhluta í fjarþjálfun fyrir Core-þjálfun VIVUS.
VIVUS þjálfun