Frostpinnar með Honeydew melónu og kóríander
Ef það skildi nú bresta á með sól um helgina, þá mæli ég með að þið prufið þessa.
Frostpinnar
Ef það skildi nú bresta á með sól um helgina, þá mæli ég með að þið prufið þessa.
Hráefni:
½ bolli hrásykur - það má nota annarskonar sætuefni.
Eitt búnt af kóríander
3 bollar af honey dew melónu – skorin smátt
1 lime – kreista safann úr henni, ætti að ná í 2 msk
Sjávarsalt
Leiðbeiningar:
4-6 frostpinna form
Taktu lítinn pott og helltu ¼ bolla af vatni og settu sykurinn saman við og láttu suðuna koma upp. Hrærðu stöku sinnum þangað til sykurinn er alveg bráðinn. Þetta tekur um 5 mínútur.
Slökktu undir pottinum og bættu kóríander saman við og hrærðu vel. Láti þessa blöndu kólna í 30 mínútur.
Settu melónuna, lime safann og smá salt í blandara. Sigtaðu kóríanderblönduna saman við.
Látið hrærast vel saman þar til þetta er orðið mjúkt.
Helltu blöndunni í 4-6 frostpinna form. Best er að frysta þetta yfir nótt en annars ættu 5 tímar að vera nóg.