Guðni talar um fyrirgefninguna
Hugleiðing á mánudegi~
Að fyrirgefa þýðir að taka fulla ábyrgð á því að hafa skapað tiltekið augnablik í samvinnu við heiminn eða annan einstakling, einn eða fleiri.
Fyrirgefningin er afar róttæk.
Hún lætur sér ekki að nægja að sleppa tökunum á gjörðum samverkamannsins og láta af gremjunni í hans garð. Fyrirgefningin blessar hlutverk hans í þinni eigin framgöngu og velsæld. Þú þakkar honum fyrir hjálpina.
Þú þakkar þér fyrir þitt framlag.