Fara í efni

Getur sumt grænmeti verið í tísku ? Svo segja sérfræðingarnir og þetta hér er í tísku núna í sumar

Við erum að tala um blómkálið. Grænkál er komið í annað sæti og blómkál hrifsaði til sín fyrsta sæti yfir tísku grænmeti fyrir 2015.
Getur sumt grænmeti verið í tísku ? Svo segja sérfræðingarnir og þetta hér er í tísku núna í sumar

Við erum að tala um blómkálið. Grænkál er komið í annað sæti og blómkál hrifsaði til sín fyrsta sætið yfir tísku grænmeti fyrir 2015.

Þó svo blómkál sé frænka brokkólí þá hefur það alls ekki sama bitra bragðið. Það má nota blómkál með næstum hvaða mat sem er því bragðið af því er svo dásamlegt.

 

Að auki er blómkál afar hollt. Það er pakkað af C-vítamíni, trefjum og próteini.

Ertu tilbúin/n að skella þér í að skoða rétti og rannsaka svo uppskriftir af yndislegum réttum sem allir innihalda blómkál?

 

Blómkál með Salsa Verde

Kaloríur: 246

Toppað með graslauk, steinselju, kapers, sítrónu, pipar og sinnepi þá fær þessi réttur mjög sérstakt og gott bragð.

Ristað blómkál með Mornay sósu

Kaloríur: 108

Ef blómkálið er hálf soðið þegar þú tekur það úr ofninum þá þarftu að breyta eldunartækninni þinni. Að rista blómkál í ofni dregur út sæta og hnetukennda bragðið.

Blómkál með grænni lauk stöppu

Kaloríur: 93

Með því að skipta út kartöflum fyrir blómkál þá ertu að draga úr neyslu á kolvetnum og sykri.

Blómkálssúpa með gylltum kartöflum

Kaloríur: 171

Í viðbót við C-vítamín sem má finna í blómkáli að þá innihalda kartöflurnar í þessari uppskrift carotene og A-vítamín.

Kjúklingur með penne pasta og fersku Mangó chutney

Kaloríur: 216

Ef þú ert að draga úr neyslu á fitu þá er þessi réttur eitthvað fyrir þig. Blómkál inniheldur bara 4.3 gr á hvern disk.

Ristaður sesam kjúklingur

Kaloríur: 333

Blómkálið og kjúklingurinn í þessum rétti fá sitt af kryddi og því má þakka soja sósunni, sesam olíu og engifer.

Allar uppskriftirnar má svo finna HÉR