Grænn smoothie með kókósvatni og mangó, ásamt fleiru dásamlega hollu
Þessi drykkur er fullur af próteini, trefjum og omega-3.
Þessi drykkur er fullur af próteini, trefjum og omega-3.
Uppskrift er fyrir einn drykk.
Hráefni:
½ bolli af kókósvatni
1/3 bolli af kotasælu
1 bolli af söxuðu grænkáli
1 bolli af frosnum banana í sneiðum
½ bolli af frosnu mangó í bitum
1 msk af hörfræjum
1-2 tsk af hreinu maple sýrópi – má sleppa
Leiðbeiningar:
Settu kókósvatn og kotasælu í blandarann, settu svo grænkálið, banana, mangó, hörfræ og sætuefni (ef notað).
Blandið þessu vel saman og hellið í glas þegar drykkur er mjúkur.
Njótið vel!