Fara í efni

Guðni skrifar um þakklætið og vanþakklætið í hugleiðingu dagsins

hugleiðing á þriðjudegi~
hugleiðing á þriðjudegi~

Andstæða þakklætis er höfnun, viðnám, sjálfsvorkunn, þreyta og skortur.

Í nútíma samfélagi verjum við mikilli orku í að ætla að verða hamingjusöm og við verðum vissulega þakklát inn á milli – helst þegar við höfum náð tilteknum árangri eða markmiðum. Við lítum oft á gjafir tilverunnar sem áreiti frekar en ábendingu; frekar en einfalda staðreynd í heiminum sem okkur býðst að fást við.

Þannig gerum við lítið úr gæfu-gjöfunum og gerum bókstaflega ekkert úr ógæfu-gjöfunum; úr árekstrum sem hreyfa mikið við okkur. Samt felast mestu tækifærin í þeim atburðum sem opinbera okkur sjálf; þeim sem áreita okkur.

Þakklæti er ljós, ást, slökun.
Vanþakklæti er skortur á ljósi, frekja, streita.