Fara í efni

Guðni talar um að ala upp heiminn í hugleiðingu dagsins

Hugleiðing á miðvikudegi~
Hugleiðing á miðvikudegi~

Að ala upp heiminn

Það er okkar hlutverk að ala upp heiminn; að kenna honum hvernig við viljum láta koma fram við okkur og segja honum hvað við viljum.

Heimurinn gerir líka allt sem hann getur til að skapa samhljóm með öllum sínum ábúendum. Þegar hjartað er dempað og varið með skildinum eða brynjunni – þegar söngur þess er brenglaður af iðrun og eftirsjá – gerir heimurinn samt sitt allra besta til að skapa samhljóm með þeim söng.

„Líkur sækir líkan heim,“ sagði einhver sem skildi þessi lögmál, og heimurinn mun ekki senda van- sælum manni velsæld sem hann þolir ekki; vel- sæld sem hann hefur ekki gefið sér heimild til að njóta; velsæld sem hann mun vísa frá sér eins og ógnandi afli.