Fara í efni

Kúrbítsnúðlur og hakksósa.

Renna heilum Kúrbít eftir rifjárni og fá heilar núðlur. Eða kaupa járn sem er fyrir svona Núðlu gerð ( skal finna í London)
Kúrbítsnúðlur og hakksósa.
Kúrbítsnúðlur og hakksósa.

Hakk og kúrbítsnúðlur.

Hakksósa.

Gott nautahakk 
1 dós Tómatar í dós
1 dós á móti vatn
1 dós tómatpure
3 Gulrætur
1 Rauð paprika
1 Rauðlaukur
4 rif hvítlaukur
1/2 vel fræ hreinsaður rauður chilli
Oregano krydd 
Herbes de Provence (pottagaldrar)
Salt og pipar

Aðferð.

Steikja hakkið á góðri pönnu sem hægt er að sjóða sósuna í líka. 
Allt hitt sett í blandara og unnið vel á.
Sósan á að vera silkimjúk.
Þá er sósan sett með kjötinu og allt soðið saman í 20min.
Krydda vel til.

Kúrbíts pasta.

Renna heilum Kúrbít eftir rifjárni og fá heilar núðlur.
Eða kaupa járn sem er fyrir svona Núðlu gerð ( skal finna í London)
Þá er að setja núðlurnar út í sjóðandi salt vatn og sjóða alls ekki meira en 1/2min
Hella yfir í sigti og láta leka extra vel af þeim vatnið.
Ég nota þurku og þrýsti aðeins yfir þær...þrýsti vatninu úr þeim.
Því mér finnst þær bestar ef ekkert vatn er eftir 

Um að gera prufa 
Ég gerði nokkrar tilraunir áður en ég var sátt.

Svo er bara að rífa Parmesan yfir og ferksan nýulin pipar.