Fara í efni

Næringarrík sætindi – 20. nóvember – Lifandi markaður

Langar þig að læra að búa til næringarríkara sælgæti ? Fá fullt af hugmyndum af gotteríi sem nærir, hressir og bætir í stað þess að gera þig þreytta/an og slappan/n. Framundan er sá árstími þar sem sælgæti og súkkulaði flæðir út um allt og frábært að snúa vörn í sókn með næringarríkum sætindum.
Næringarík sætindi frá heilsumömmunni

Við gerum súkkulaði og útfærum það á ýmsa vegu, gerum ofur orkukúlur sem eru frábærar í hversdagsleikanum þegar okkur vantar smá orkubita og einnig fínasta konfekt og hráköku sem sómir sér á hvaða veisluborði sem er.

Við ætlum að ræða um það hvernig við getum gert baksturinn heilsusamlegri og skoða hvaða mismunandi sætu er hægt að nota í staðinn fyrir hvíta sykurinn.  Einnig skoða hvernig hægt er halda blóðsykrinum í góðu lagi :)

k

Fimmtudagur 20. nóvember kl. 18.00-20.00 – Lifandi Markaði, Borgartúni 24 (salur á neðri hæð)

Verð: 6500 kr

Innifalið er:  Uppskriftarhefti með rúmlega 40 mismunandi uppskriftum og fullt af gómsætu smakki.

Skráning á: heilsumamman@gmail.com eða í gegnum facebook síðu heilsumömmunar.

Ath. Munið að stéttafélög greiða allt að helming af námskeiðisgjöldum !