HEILSUVERA-rafrænn aðgangur að eigin heilbrigðisupplýsingum
Heilsuvera er upplýsingavefur þar sem einstaklingar geta náð í heilbrigðisupplýsingar um sig úr miðlægum gagnagrunni allra heilbrigðisstofnana.
Þessi vefur er á ábyrgð Embættis landlæknis og er unnin í samvinnu við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og hugbúnaðarfyrirtækið TM Software.
Tilgangurinn með Heilsuveru var að þróa öruggan rafrænan aðgang fyrir einstaklinga að eigin heilbrigðisupplýsingum, hvar og hvenær sem þörf væri á og óháð því á hvaða heilbrigðisstofnun, heilsugæslustöð eða starfsstofu sérfræðings upplýsingarnar væru skráðar.
Með aðgangi að Heilsuveru geta einstaklingar nú fengið yfirsýn yfir lyfjanotkun sína, sótt rafrænt um endurnýjun lyfseðla, séð stöðu lyfseðla í lyfseðlagátt, séð ofnæmi sem hefur verið skráð í sjúkraskrá, séð framkvæmdar bólusetningar, átt örugg rafræn samskipti við heilbrigðisstarfsmenn og bókað tíma rafrænt á heilsugæslustöð. Auk þess er hægt að fá aðgang að upplýsingum eigin barna að 16. ára aldri.
Heilsuvera er enn í þróun og munu einstaklingar smám saman fá aukinn aðgang að eigin heilbrigðisupplýsingum með hjálp Heilsuveru.
Má t.d. nefna aðgang að upplýsingum um legur á sjúkrahúsi, heimsóknir á heilsugæslustöð, helstu greiningar og meðferðir, rannsóknaniðurstöður, hverjir hafa flett upp í sjúkraskrá einstaklingsins og möguleika á eigin skráningu einstaklinga í sjúkraskrá (t.d. ýmis vítamín og önnur lyf en þau sem eru lyfseðilsskyld).
Aðgangur að Heilsuveru.
Til þess að fá aðgang að eigin heilbrigðisupplýsingum í Heilsuveru þarf rafræn skilríki. Rafræn skilríki eru bæði fáanleg á snjallkortum og í farsímum. Nánari upplýsingar er að finna á síðunni Rafræn skilríki Opnast í nýjum glugga.
Til að skrá sig inn í Heilsuveru ferð þú inn á https://www.heilsuvera.is/ Opnast í nýjum glugga
Til þess að fá aðgang að rafrænum tímabókunum á heilsugæslustöð og endurnýjun lyfjaseðla þarf að vera skráður á heilsugæslustöðina.
Tekið saman af vef Embættis landlæknis-sjá nánar; http://www.landlaeknir.is/gaedi-og-eftirlit/heilbrigdisthjonusta/rafraen-sjukraskra/heilsuvera-minar-heilbrigdisupplysingar/
Höfundur greinar:
Guðrún Ólafsdóttir, hjúkrunarfræðingur
Af vef doktor.is