Fara í efni

Hin magnaða vél, heilinn - Guðni með miðvikudagshugleiðingu

Hin magnaða vél, heilinn - Guðni með miðvikudagshugleiðingu

Alltaf verður þinn vilji, sama hversu veikur hann er eða hvaða tíðni þar ríkir.

Ef þú lætur þig reka í gegnum lífið þá tekur við sú innbyggða sjálfstýring sem er hluti af okkur öllum – þá taka sjálfkrafa við stjórninni gömlu forritin sem við lærðum í æsku og byggjast oft á óskynsamlegum skilyrðingum og ályktunum. Forritin búa í magnaðri vél sem heitir heili, en heilinn vill helst af öllu vera mjög upptekinn og halda spennustiginu háu. Í huganum býr líka skortdýrið sem vill síst af öllu hlusta á hjartað og hvað það hefur til málanna að leggja.

Þú velur eða skortdýrið velur.
Þetta lögmál gildir um alla tegund næringar, matinn sem við borðum, vökvann sem við drekkum, andrúmsloftið sem við öndum að okkur, orðin sem við lesum, orðin sem við heyrum frá vinum og vandamönnum, orðin sem við heyrum innra með okkur.