Fara í efni

Þriðjudagur og hugleiðing frá Guðna lífsráðgjafa

Hugleiðing á fallegum þriðjudegi~
Hugleiðing á fallegum þriðjudegi~

Minn málflutningur snýst í kjarna sínum um tvennt:

Í fyrsta lagi að við látum af skaðlegri og víðtækri fjarveru með því að mæta inn í augnablikið og endurheimta orkuna okkar og í öðru lagi að allan sannan mátt sé að finna í hverju og einu okkar.

Við trúum aldrei umfram okkur sjálf. 

Ef við trúum ekki á okkur sjálf og á eigin mátt getum við ekki trúað á neitt annað, ekki umfram eigin trú. 

Til að tengjast mættinum, náttúrunni og guði verðum við að byrja á því að tengjast okkur af fullum krafti og skínandi skæru ljósi.