Fara í efni

Hugleiðing dagsins frá Guðna Gunnarssyni lífsráðgjafa

Að finna fyrir náð sinni og hlúa að henni.
Hugleiðing á föstudegi~
Hugleiðing á föstudegi~

Að finna fyrir náð sinni og hlúa að henni.

Við erum viljandi eða óviljandi. Í framgöngunni opinberast heimildin; við sýnum heiminum með gjörðum okkar hversu verðug við erum í eigin augum og biðjum heiminn um að skammta okkur velsæld eða vansæld eftir því.

Í innsæinu fylgjumst við með framgöngunni; finnum fyrir náð okkar og notum heimildina til að meta hversu mikla velsæld við erum tilbúin að leyfa okkur.

 Í innsæinu erum við full lotningar yfir því að vera á lífi; því að draga andann, sjá og heyra. Við þorum fyrir hornið, við treystum sjálfum okkur og heiminum og elskum allt sem er; þegar við dettum reisum við okkur umsvifalaust á fætur.

Í innsæinu skiljum við samhengi orsaka og afleiðinga; við dönsum í nýjum takti, njótum ásta með augnablikinu og dönsum með lífinu, dönsum eins og hafið gerir í sinni skýrustu framgöngu.