Fara í efni

Hugleiðing dagsins frá Guðna Gunnarssyni lífsráðgjafa

Blue sign kristall
Blue sign kristall

Þegar við höfum öðlast innsæi þá er næringin sem við veljum ekki lengur ástæða til höfnunar, hver sem hún kann að vera.

Við fylgjumst með því sem við borðum í kærleika og án dóms og þá er ekkert til lengur sem heitir „svindl“. Það eina sem eftir stendur er val um eina fæðu umfram aðra; aðeins lögmálið um orsök og afleiðingu.

Og sá sem lifir í ljósinu og kærleikanum er alltaf fær um að taka afleiðingum gjörða sinna án dóms og refsingar.