Fara í efni

Hugleiðing dagsins frá Guðna Gunnarssyni lífsráðgjafa

hugleiðing á miðvikudegi
hugleiðing á miðvikudegi

Hvað þýðir það þegar ég hvet þig til að lifa í innsæi?

Að verða vitni að lífinu án þess að tengja og fjötra skynjun þína einhverri merkingu, góðri eða slæmri. Þú verður óháð vitni sem hvorki dæmir né dregur í dilka. Hvorki þig né aðra. Þú dregur ekki lengur ályktannir byggða á reynslu gærdagssins.

Það þýðir að á sama tíma eru nokkur hlutverk sem þú getur ekki tekið að þér; hlutverk sem þú ert mjög vanur að sinna:
Gróa á Leiti, nágrannavarslan, lögreglan, saksóknarinn, dómarinn, fangavörðurinn og böðullinn.

Þegar þú ert kærleiksríkt vitni þá geturðu ekki sinnt þessum hlutverkum.