Fara í efni

Hugleiðing dagsins frá Guðna Gunnarssyni lífsráðgjafa

Hugleiðing á fimmtudegi
Hugleiðing á fimmtudegi

Að horfa á blómstrunina.

Blómið opnast eins og því ber; eins og alltaf var ætlunin. Í innsæinu fylgist hjartað með því hvernig þú blómstrar; það sér blómstrunina skýrt og skært og dæmir ekkert í framgöngunni.

Í innsæi er hjartað fullt lotningar, það dáist að því sem á sér stað og þú nýtur þess að vera kraftaverk.

Allt er opinberað. Allt er ÁST!